Fotbolti.net
25.11.26 - 17:34
Elvar Geir Magnússon

Srivaddhanaprabha hættur við að selja Leicester

Aiyawatt 'Top' Srivaddhanaprabha, eigandi og stjórnarformaður Leicester.

Aiyawatt 'Top' Srivaddhanaprabha, eigandi og stjórnarformaður Leicester.

Canon

Mynd: EPA

Aiyawatt 'Top' Srivaddhanaprabha eigandi og stjórnarformaður Leicester er hættur við áform um að selja félagið. Hann segir að lögð verði áhersla á að endurbyggja liðið eftir hnignun síðustu ára.

Leicester var sett á sölulista í sumar og verðmiðinn var yfir 200 milljónum punda.

Hápunkturinn í sögu Leicester kom 2016 þegar liðið kom öllum á óvart og varð Englandsmeistari. Fimm árum síðar varð Leicester bikarmeistari en síðustu tvö ár hefur liðið fallið og er nú í C-deildinni.

„Við fórum í ferli til að kanna hvort ný fjárfesting eða breytingar á eignarhaldi gætu verið rétta leiðin fyrir félagið. Ég hef nú ákveðið að ljúka ferlinu til að gera okkur kleift að einbeita okkur að þeirri vinnu sem þarf til að koma félaginu áfram," segir Top Srivaddhanaprabha í yfirlýsingu til stuðningsmanna.

Hann hefur gegnt stöðu stjórnarformanns eftir að faðir hans, Khun Vichai, lést í þyrluslysi rétt fyrir utan leikvanginn árið 2019.
Leicester er sem stendur í sjöunda sæti C-deildarinnar.
Srivaddhanaprabha hættur við að selja Leicester
Canon

Mynd: EPA

England 1. deild - karlar

#LiðLmunStig
1Stockport16+1732
2Huddersfield15+1529
3Oxford United14+1229
4Sheff Wed16+1227
5Luton15+727
6Bradford15+526
7Leicester15+423
8Plymouth16-323
9Reading16+722
10MK Dons15+622
11Cambridge United15-321
12Leyton Orient14+820
13Stevenage14+520
14Mansfield Town14+220
15Wycombe15-319
16Burton16-817
17Wigan16-917
18Wimbledon15-1416
19Notts County13-214
20Blackpool15-613
21Doncaster Rovers14-813
22Peterboro14-1013
23Bromley15-1913
24Barnsley15-159
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.