Fotbolti.net
25.11.26 - 08:48
Elvar Geir Magnússon

100 milljóna punda verðmiði á skotmarki Arsenal

Stórlið vilja Eli Junior Kroupi.

Stórlið vilja Eli Junior Kroupi.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Bournemouth setur háan verðmiða á Kroupi, Manchester United hefur áhuga á miðverði Brentford og bandarísku ungstirni hjá Dortmund. Hér er slúðurpakkinn.
Bournemouth hefur sett 100 milljóna punda verðmiða á franska sóknarmanninn Eli Junior Kroupi (20) en Arsenal, Barcelona og Paris St-Germain hafa sýnt honum áhuga. (TalkSport)

Írski miðvörðurinn Nathan Collins (25) hjá Brentford er ofarlega á óskalista Manchester United fyrir janúargluggann. (TalkSport)

Japanski miðjumaðurinn Ao Tanaka (28) er nálægt því að skrifa undir nýjan samningvið Leeds United til 2029. (Sky Sports)

Dominic Calvert-Lewin (29) er einnig í viðræðum um nýjan samning við Leeds en Manchester United hefur sýnt enska framherjanum áhuga. (Mail)

Liverpool er nálægt því að ganga frá nýjum samningi við enska kantmanninn Rio Ngumoha (18). (Teamtalk)

Roma hefur áhuga á að fá Callum Hudson-Odoi (26) á láni frá Nottingham Forest í janúar. (Football Insider)

Como og Napoli eru meðal félaga sem hafa áhuga á að fá sóknarmanninn Joshua Zirkzee (25) frá Manchester United í janúar. Félögin tvö bíða eftir skýrari mynd af stöðu Hollendingsins í áformum Mauricio Pochettino. (Sky Sports)

Vinstri bakvörðurinn Lewis Hall (22) hjá Newcastle United verður ekki seldur í félagaskiptaglugganum í janúar. (iPaper)

Manchester United og Barcelona hafa aukið áhuga sinn á Mathis Albert (17), kantmanni Borussia Dortmund. Albert lék sinn fyrsta landsleik fyrir Bandaríkin undir stjórn Mauricio Pochettino, núverandi stjóra United. (Teamtalk)
Nathan Collins í leik með Brentford.

Nathan Collins í leik með Brentford.

Canon

Mynd: EPA

Mathis Albert í leik með Dortmund.

Mathis Albert í leik með Dortmund.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.