Fotbolti.net
25.11.26 - 16:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Breiðablik líklegra en Valur til að landa Benedikt

Breiðablik líklegra en Valur til að landa Benedikt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á mánudag var sagt frá því að Benedikt Warén væri ósáttur hjá Stjörnunni og vildi fara frá félaginu. Sögunni, sem fyrst var sögð í Dr. Football, fylgdi að Stjarnan vildi fá 20 milljónir króna fyrir leikmanninn.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net bauð Valur í leikmanninn í síðasta mánuði en því tilboði var hafnað. Nú hefur Breiðablik tekið forystuna í kapphlaupinu og flest bendir til þess að Benedikt snúi aftur í Smárann en hann var síðast leikmaður Breiðabliks snemma árs 2023.

Þá var hann keyptur í Vestra og Stjarnan keypti hann svo af Vestra fyrir 13 milljónir króna.
Benedikt sagður ósáttur og með 20 milljóna verðmiða
TENGT EFNI

Benedikt sagður ósáttur og með 20 milljóna verðmiða

Jökull Elísabetarson var þjálfari Stjörnunnar þegar Benedikt var keyptur þangað og Jökull er nú þjálfari Breiðabliks. Jökull hefur mikinn á því að vinna aftur með Benedikt. Til þess að það gerist þarf Breiðablik væntanlega að greiða þær 20 milljónir sem Stjarnan vill fá fyrir leikmanninn.

Gylfi Þór Sigurðsson er dýrasti leikmaður sem hefur verið keyptur á Íslandi en Víkingur borgaði um 20 milljónir fyrir Gylfa snemma árs 2025.

Benedikt var besti leikmaður Stjörnunnar á liðnu tímabili sem var mikið vonbrigðatímabil í Garðabæ. Hann skoraði níu mörk og lagði upp fimm í 19 byrjunarliðsleikum í Bestu deildinni.
Breiðablik líklegra en Valur til að landa Benedikt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.