25.11.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ungur Senegali á leið til Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sidy Barhama Ndiaye, 16 ára senegalskur vængmaður, er á leið til Liverpool frá Diambars FC í heimalandinu. James Pearce hjá The Athletic greinir frá þessu.
Ndiaye mun ganga formlega til liðs við Liverpool þegar hann nær 18 ára aldri. Hann gengur til liðs við félagið í janúar 2028 þar sem hann fagnar afmælinu sínu á gamlársdag.

Hann var á reynslu hjá Liverpool á síðasta ári og er að standa sig vel á HM U17 sem er í fullum gangi. Hann skoraði eitt og lagði upp tvö í 9-0 sigri Senegal gegn Kúbu á dögunum.
Liverpool fékk senegalska varnarmanninn, Mor Talla Ndiaya, austurríska varnarmanninn Ifeanyi Ndukwe og belgíska markmanninn Lucca Brughmans eftir frammistöðu þeirra á HM U17 í fyrra.