25.11.26 - 18:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ætla ekki að styrkja hópinn þrátt fyrir mikil meiðslavandræði

Luis Enrique

Mynd: EPA

Desire Doue

Mynd: EPA

Luis Enrique

Mynd: EPA
PSG hefur orðið fyrir miklum áföllum á tímabilinu en Desire Doue sleit krossband um helgina. Þá sleit Khvicha Kvaratskhelia einnig krossband í síðustu viku.
Luis Enrique, stjóri PSG, hefur mikla trú á liðinu og segist ekki ætla að fara á leikmannamarkaðinn í janúar.
„Við þurfum ekki að kaupa leikmenn í janúar, það er ekki okkar stíll að kaupa leikmenn aðeins fyrir sex mánuði," sagði Enrique.
„Við erum ánægðir með hópinn. Við erum ekki hræddir við neitt. Við höfum trú á okkar getu og seiglu. Við erum sárir fyrir hönd leikmannan sem eru meiddir en við viljum deila frábærum minningum með þeim á tímabilinu."
„Ætlum við að grenja og kvarta? Nei, við virkum ekki þannig. Þetta er fótbolti á hæsta stigi. Öll lið og allir þjálfara vita það, meiðsli gerast. Þetta lið hefur sýnt alla þessa seiglu síðustu þrjú ár. Við komumst alltaf upp úr þessu. Þetta er verkefni núna og við þurfum að halda áfram að bæta okkur," sagði Enriqeu að lokum.