25.11.26 - 19:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin: Þægilegt fyrir Barcelona í Aserbaísjan

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Barcelona vann öruggan sigur á Sabah í Aserbaísjan í kvöld. Barcelona braut ísinn eftir um hálftíma leik.
Karim Adeyemi átti sendingu fyrir markið sem Stas Pokatilov í marki Sabah varði út í teiginn og Anthony Gordon fylgdi á eftir og skoraði. Gordon kom boltanum í netið strax í næstu sókn en rangstaða dæmd.

Spænska liðið kláraði verkefnið á níu mínútna kafla í seinni hálfleik. Grodon tvöfaldaði forystuna snemma í seinni hálfleik með keimlíku marki. Gabriel Jesus átti skot sem Pokatilov varði beint fyrir fætur Gordon og eftirleikurinn var auðveldur.
Adeyemi bætti þriðja markinu við fjórum mínútum síðar og fimm mínútum eftir það innsiglaði Gabriel Jesus sigur Barcelona.
Joy-Lance Mickels náði að klóra í bakkann fyrir Sabah þegar hann skoraði af stuttu færi eftir góða sókn en nær komust þeir ekki. Barcelona er í 4. sæti með 12 stig en Sabah er með þrjú stig í 32. sæti.
Tajon Buchanan var hetja Villarreal á útivelli gegn Slavia Prag en heimamenn fóru illa með góð færi í seinni hálfleik. Villarreal er í 22. sæti með sex stig en Slavia Prag er í 34. sæti með eitt stig.
Sabah FK 1 - 4 Barcelona
0-1 Anthony Gordon ('31 )
0-2 Anthony Gordon ('51 )
0-3 Karim Adeyemi ('55 )
0-4 Gabriel Jesus ('60 )
1-4 Joy-Lance Mickels ('63 )
Slavia Praha 0 - 1 Villarreal
0-1 Tajon Buchanan ('62 )