Fotbolti.net
25.11.26 - 23:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Einkunnir Liverpool og Man Utd: Lammens fær þrist - Bruno og Isak bestir

Senne Lammens

Senne Lammens

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Liverpool vann Club Brugge og Man Utd gerði jafntefli gegn Sporting í viðburðaríkum leik í Meistaradeildinni í kvöld. BBC gaf leikmönnum ensku liðanna einkunnir fyrir frammistöðu sína.

Alexander Isak skoraði tvennu og Florian Wirtz eitt í 3-0 sigri. Isak var maður leiksins og fær átta. Jeremie Frimpong fékk tækifæri í liðinu og fékk fimm. það var lítið álag á Liverpool í vörninni en það kom lítið út úr Frimpong sóknarlega.

Senne Lammens átti mjög slakt kvöld í marki Man Utd. Hann byrjaði hins vegar á því að verja víti. Hann gerðist síðan brotlegur stuttu síðar og Luis Suarez kom Sporting yfir úr öðru víti.

Lammens missti síðan boltann inn í markteignum undir lokin og Suarez bjargaði stigi fyrir Sporting. Lammens fær þrjá í einkunn. Bruno Fernandes skoraði bæði mörk Man Utd og fær átta.
Liverpool: Alisson (6), Frimpong (5), Jacquet (6), Araujo (6), Kerkez (6), Munoz (6), Nyoni (7), Szoboszlai (7), Barcola (7), Wirtz (7), Isak (8),
Varamenn: Ngumoha (5), Van Dijk (6), Mac Allister (5), Chambers og Koumas (Spiluðu ekki nóg)

Man Utd: Lammens (3), Yoro (7), Maguire (6), Martinez (7), Mazraoui (6), Mainoo (6), Tielemans (5), Diallo (7), Mbeumo (6), Fernandes (8), Zirkzee (5).
Varamenn: Dalot (6), Dorgu (6), Lacey (6), Mount og Santos (Spiluðu ekki nóg).
Alexander Isak fagnar

Alexander Isak fagnar

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.