25.11.26 - 15:04
Elvar Geir Magnússon
Freyr tjáir sig: Draumur minn að þjálfa í ensku deildinni

Freyr Alexandersson.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Freyr og aðstoðarmaður hans, Jonathan Hartmann.

Mynd: Brann

Freyr Alexandersson tjáði sig stuttlega við norska fjölmiðla eftir æfingu hjá Rosenborg í dag. Hann staðfestir að hafa rætt við Swansea og það sé mikill áhugi frá félaginu

TENGT EFNI
Alfreð um Frey og Swansea: Árangri fylgir áhugi
„Það hafa verið margar sögusagnir. Það sem ég get staðfest er að Swansea hefur mikinn áhuga, ég hef heyrt frá þeim," segir Freysi en hann var spurður að því hvort hann hefði áhuga á að taka við Swansea?
„Ég hef aldrei lent í svona aðstæðum áður. Það eitt og sér er yfirþyrmandi. Ég ber sterkar tilfinningar til Rosenborg, leikmannahópsins og staðarins. Staðan er svolítið erfið, en áhuginn er frá félagi í enska deildarkerfinu. Eins og ég hef sagt áður er draumur minn að starfa þar."
Þeir komu til mín
„Það sem ég get sagt núna er að ég hef engar aðrar áætlanir en að vera hér á morgun og þjálfa liðið gegn Molde. Það sem hefur gerst hefur gerst mjög hratt. Síðastliðinn sólarhring hef ég bara einbeitt mér að Rosenborg."
„Ég vil að það komi skýrt fram að ég er mjög ánægður hjá Rosenborg og var ekki að leita að öðru starfi. Þeir komu til mín og það er auðvitað mikill heiður," segir Freyr Alexandersson.
Swansea situr í 8. sæti í Championship-deildinni og í baráttu um að komast upp í ensku úrvalsdeildina. Rosenborg mætir Molde næsta laugardag í leik sem verður lykilviðureign í baráttunni um Evrópusæti.

Heimild: TV 2