25.11.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Búast við Neuer aftur í byrjun janúar

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Þýska stórliðið Bayern München gerir ráð fyrir að Manuel Neuer snúi aftur úr meiðslum í byrjun janúar.

TENGT EFNI
Neuer ekki meira með á þessu ári
Hinn fertugi Neuer meiddist á hægri fæti gegn Mainz í byrjun mánaðarins og var í kjölfarið greint frá því að hann yrði frá keppni í að minnsta kosti tvo mánuði.
Meiðslin hafa verið að hrjá Bayern undanfarnar vikur, en félagið hefur einnig misst Harry Kane og Michael Olise á meiðslalistann. Þá hefur Jamal Musiala lítið verið til taks eftir að hann greindist með flogaveiki.
BILD greinir þó frá góðum fréttum af Neuer, en Bayern gerir nú ráð fyrir að hann verði klár í slaginn í byrjun janúar. Félagið telur sig því ekki þurfa að leita að nýjum markverði í félagaskiptaglugganum.
Þetta gæti verið síðasta tímabil Neuer hjá Bayern. Hann lagði landsliðshanskana á hilluna í annað sinn eftir HM í sumar og hefur glímt við þrálát meiðsli undanfarin misseri. Það bendir því margt til þess að styttist í lok ferilsins.
Jonas Urbig er talinn líklegastur til að taka við keflinu af Neuer til framtíðar, en hann hefur verið aðalmarkvörður Bayern í fjarveru hans. Sven Ulreich er honum til halds og trausts.