Fotbolti.net
26.01.05 - 06:32
Magnús Már Einarsson

Albertini til Barcelona (Staðfest)

Albertini í læknisskoðuninni.

Albertini í læknisskoðuninni.

Canon
Demetrio Albertini stóðst læknisskoðun hjá Barcelona í gær og skrifaði í kjölfarið undir samning við liðið sem er út tímabilið. Albertini sem er 33 ára stóðst læknisskoðunina með prýði og er hann búinn að jafna sig alveg eftir hnéaðgerð.
Albertini kemur frítt til Barcelona eftir að hann fékk sig lausan frá Atalanta en hann á að leysa þá Thiago Motta og Edmilson af hólmi hjá Barcelona þar sem báðir eru illa meiddir. Albertini sem á 79 landsleiki að baki fyrir Ítali hefur leikið með Lazio, Atletico Madrid

"Ég talaði við Frank (Rijkaard, þjálfara Barcelona) áður en ég kom. Hann sagði mér að hann vildi fá mig vegna reynslu minnar, út af því að ég er löglegur í Meistaradeildinni og af því að ég get hjálpað liðinu." Sagði Albertini en þess má geta að hann lék með Rijkaard hjá AC Milan á sínum tíma.

Barcelona er einnig við það að landa sóknarmanninnum Maxi Lopez frá River Plate á um 3,5 milljónir punda en hann mun líklega fara í læknisskoðun hjá Barca í dag og skrifa í kjölfarið á því undir fjögurra og hálfs árs samning við liðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.