Fotbolti.net
26.01.06 - 15:51
Magnús Már Einarsson

Mueller til Lyon (Staðfest)

Mueller til Lyon (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lyon hefur keypt svissneska varnarmanninn Patrick Mueller frá FC Basel á þrjár milljónir evra en franska liðið greindi frá þessu á vefsíðu sinni nú í dag.
Hinn 29 ára gamli Mueller lék með Lyon frá 2000-2004 en nú er hann kominn aftur til liðsins og hefur hann gert tveggja og hálfs árs samning. Koma hans er kærkominn fyrir Lyon því varnarmennirnir Eric Abidal, Jeremy Berthod, Anthony Reveillere og Claudio Cacapa eru allir frá vegna meiðsla sem stendur.

Gerard Houllier þjálfari Lyon var sáttur eftir að gengið var frá kaupunum á Mueller en hann sagði: ,,Patrick var aðamarkmið okkar í félagaskiptaglugganum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.