26.01.06 - 16:03
Magnús Már Einarsson
Derby kaupir Moore frá WBA (Staðfest)

Darren Moore fær rauða spjaldið fyrr í mánuðinum.

Mynd: Getty Images

Darren Moore fær rauða spjaldið fyrr í mánuðinum.

Mynd: Getty Images
Derby County hefur keypt varnarmanninnn Darren Moore frá West Bromwich Albion fyrir fé sem getur orðið allt að 500 þúsund pund standi leikmaðurinn sig vel.
Þessi 31 árs leikmaður hefur aðeins fengið níu tækfæri í byrjunarliði hjá WBA á leiktíðinni og þar á meðal fékk hann rautt spjald gegn Wigan á dögunum. Þessi Jamaíkamaður sem var í vörn WBA þegar að liðið hélt 27 sinnum hreinu tímabilið 2001/2002 hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við Derby en hann kom til WBA frá Portsmouth árið 2001.
Bryan Robson stjóri WBA sagði: ,,Derby hefur gert gott tilboð í Darren. Á þesusm aldri fannst Darren að það væri gott að fara á þessu stigi ferils sins. Hann vill spila fótbolta með aðalliði."
Bryan Robson stjóri WBA sagði: ,,Derby hefur gert gott tilboð í Darren. Á þesusm aldri fannst Darren að það væri gott að fara á þessu stigi ferils sins. Hann vill spila fótbolta með aðalliði."
