Fotbolti.net
26.01.06 - 19:57
Magnús Már Einarsson

De Jong til Hamburg (Staðfest)

Kominn með treyju Hamburg SV.

Kominn með treyju Hamburg SV.

Canon

Mynd: Getty Images

Hamburg SV hefur keypt hollenska varnarmanninn Nigel de Jong frá Ajax og er kaupverðið talið vera ein milljón evra en þessi efnilegi leikmaður átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Ajax.
De Jong sem er 21 árs var eftirsóttur af mörgum liðum sem höfðu hugsað sér að krækja í hann í sumar þegar að samningur hans myndi renna út. Þau voru hinsvegar of sein því de Jong sem hefur leikið tíu landsleiki fyrir Hollendinga hefur gert fjögurra og hálfs árs samning við Hamburg.

Hjá liðinu hittir hann fyrir félaga sína úr hollenska landsliðinu Khalid Boulahrouz og Rafael van der Vaart en Hamburg er sem stendur í öðru sætinu í þýsku deildinni, sex stigum á eftir toppliði Bayern Munich.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.