Fotbolti.net
26.02.07 - 14:17
Andri Fannar Stefánsson

Voronin til Liverpool í sumar (Staðfest)

Voronin til Liverpool í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hafa staðfest það að úkraínski landsliðsmaðurinn, Andriy Voronin, muni ganga til liðs við félagið í sumar og hefur hann skrifað undir samning til fjögurra ára.
Voronin sem er 27 ára mun verða samningslaus þegar tímabilinu lýkur og mun hann því fara á frjálsri sölu til Liverpool frá Bayer Leverkusen.

Hann hefur einnig leikið með liðunum Cologne, Mainz og Borussia Moenchengladbach og þá hefur hann leikið 40 landsleiki fyrir Úkraínu og skorað í þeim fimm mörk.

Voronin var hluti af Leverkusen liðinu sem sló Blackburn út úr Evrópukeppni félagsliða og þá var hann í landsliðshóp Úkraínu á HM í Þýskalandi í sumar.

Hann spilaði tvisvar gegn Liverpool fyrir tveimur árum þegar enska liðið sigraði Leverkusen samtals 6-2 í Meistaradeildinni. Kaupin á honum eru þau fyrstu hjá Liverpool síðan að auðjöfrarnir, George Gillett og Tom Hicks yfirtóku félagið.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.