26.02.08 - 15:25
Hörður Snævar Jónsson
Guðjón Gunnarsson til KS/Leifturs á láni frá Breiðablik (Staðfest)

Guðjón er hér annar til hægri í neðri röði á myndinni.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

KS/Leiftur sem leikur í 1.deildinni í sumar hefur fengið góðan liðsstyrk, Guðjón Gunnarsson leikmaður Breiðabliks mun leika með liðinu í sumar.
Guðjón var að ganga upp úr 2.flokki hjá Breiðablik en síðasta sumar var hann fyrirliði og markahæsti leikmaður liðsins.
Guðjón sem er framsækin miðjumaður mun spila sinn fyrsta leik með KS/Leiftri á föstudag í Lengjubikarnum þegar liðið mætir Skagamönnum.
KS/Leiftur eru nýliðar í 1.deildinni en liðið endaði í þriðja sæti í annari deild síðasta sumar með 36 stig.
Frekari tíðinda er að vænta úr herbúðum KS/Leiftur á næstu dögum.