Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, fékk rautt spjald í 2-1 tapi Real Madrid gegn Manchester City í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Ekki er um að ræða fyrsta rauða spjald hans á ferlinum, heldur það 26. í röðinni.
Oli McBurnie, framherji Sheffield United, gerir grín að þessari staðreynd á Twitter. „Sergio Ramos er með 26 rauð spjöld á ferlinum, fleiri rauð spjöld en ég á spilaða leiki."
Þetta er þá hans fjórða rauða spjald í Meistaradeildinni og jafnar hann þar með Edgar David og Zlatan Ibrahimovic yfir flest rauð spjöld í sögu keppninnar.
Sergio Ramos 26 career red cards🤣🤣 more reds than I’ve had appearances 🤣
— Oli McBurnie (@oli_mcburnie) February 26, 2020
Athugasemdir