Andri Hjörvar Albertsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs HK. Hann tekur við af starfinu af Pétri Rögnvaldssyni og mun stýra liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Andri þekkir vel til innan félagsins, en hann hóf störf við þjálfun í HK haustið 2024 og var aðstoðarþjálfari Péturs á síðasta tímabili.
Andri Hjörvar var þjálfari Þórs/KA tímabilin 2020-2021 og vann svo hjá Haukum sem yfirþjálfari yngri flokka áður en hann hélt í Kórinn. Hann er uppalinn Þórsari og lék einnig með Grindavík og Fjarðabyggð á sínum leikmannaferli.

Úr tilkynningu HK
Hann hefur langa og víðtæka reynslu úr þjálfun meistaraflokks sem og yngri flokka og er með UEFA PRO þjálfaragráðu.
„Við erum afar ánægð með að fá Andra Hjörvar í nýtt hlutverk innan HK. Hann þekkir félagið og leikmenn liðsins vel, er metnaðarfullur og við erum sannfærð um að hann muni leiða liðið áfram og byggja ofan á það góða starf sem hefur verið unnið," segir Kristín Jónsdóttir varaformaður fótboltadeildar HK.
Athugasemdir