26.04.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Tómas Leifsson í Fjölni frá FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kantmaðurinn Tómas Leifsson hefur gengið til liðs við Fjölni úr fyrstu deild frá Íslandsmeisturum FH og hefur hann fengið leikheimild með Grafarvogsliðnu.
Tómas hefur æft með Fjölnismönnum að undanförnu en hann þekkir vel til liðsins þar sem hann var þar í láni sumarið 2005.
Það sumar skoraði hann átta mörk í sextán leikjum í fyrstu deildinni auk þess að skora þrjú mörk í tveimur leikjum í VISA-bikarnum.
Tómas sem er 22 ára gamall er uppalinn hjá FH. Hann lék einn leik síðastliðið sumar en sá leikur var í VISA-bikarnum gegn Víkingi.