Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 26. apríl 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Völsungur semur við argentískan Spánverja (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Völsungur hefur krækt í argentískan Spánverja til að hjálpa liðinu í 2. deildinni í sumar.

Sá heitir Santiago Feuillassier Abalo og er 26 ára gamall. Hann getur leikið sem sóknarsinnaður miðjumaður og sem kantmaður samkvæmt Transfermarkt.

Santiago spilaði síðast á Ítalíu en hann hefur einnig spilað í Panama, í Sviss og á Spáni á ferli sínum.

Santiago spilaði sinn fyrsta leik fyrir Völsung gegn Tindastóli í Mjólkurbikarnum á föstudag og var þar á skotskónum í 2-0 sigri.

Völsungi er spáð neðsta sæti 2. deildar í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner