Fotbolti.net
26.05.05 - 15:41
Magnús Már Einarsson

Ezquerro til Barcelona (Staðfest)

Ezquerro (í miðjunni) fagnar marki ásamt félögum sínum.

Ezquerro (í miðjunni) fagnar marki ásamt félögum sínum.

Canon
Santiago Ezquerro leikmaður Athletic Bilbao hefur samið við Barcelona um að ganga til liðs við liðið í sumar. Ezquerro sem er 28 ára getur bæði spilað á miðjunni, á kantinum eða í framlínunni.
Ezquerro sem leikið hefur með Osasuna, Atletico Madrid og Mallorca er búinn að skora 12 mörk fyrir Athletic á leiktíðinni en hann mun gera þriggja ára samning við Barcelona með möguleika á framlenginu.

Ezquerro sem kom til Athletic árið 1998 sagði meðal annars á blaðamannafundi í Bilbao í dag ,,Ég mun spila með Barcelona frá næstu leiktíð. Sannleikurinn er að þetta var tilboð sem ég gat ekki hafnað."

Txiki Begiristain yfirmaður íþróttatmála hjá Barcelona var ánægður með að fá Ezquerro en hann sagði ,,Hann er gæða leikmaður með skynsamar hreyfingar á vellinum, hann er fjölhæfur og getur skorað mörk. Hann hefur haft frábæra lokaleiktíð hjá Athletic og mun koma til Barcelona með metnað og þrá um að vinna bikara."

Hollenski miðjumaðurinn Mark van Bommel hefur þegar gengið frá þriggja ára samningi við Barcelona og mun hann koma til liðsins í sumar en spennandi verðu að sjá hvort Spánarmeistararnir styrkji sig ennþá frekar en það verður að teljast líklegt.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.