26.05.06 - 13:53
Magnús Már Einarsson
Dickov til Manchester City (Staðfest)

Dickov er kominn aftur til Manchester City.

Mynd: Getty Images

Dickov er kominn aftur til Manchester City.

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur gert tveggja ára samning við framherjann Paul Dickov en hann kemur til liðsins eftir að hafa hafnað nýju samningstilboði frá Blackburn Rovers.
Þessi 33 ára framherji kannast vel við sig hjá City því hann lék með liðinu frá 1996 til 2002 áður en hann fór sðan til Leicester þar sem hann var í tvö ár áður en hann kom til Blackburn.
Hjá Blackburn skoraði Dickov sjö mörk á nýliðnu tímabili en hann fékk hins vegar ekki svo mörg tækifæri í byrjunarliðinu.
Hjá Blackburn skoraði Dickov sjö mörk á nýliðnu tímabili en hann fékk hins vegar ekki svo mörg tækifæri í byrjunarliðinu.
