26.05.07 - 17:34
Andri Fannar Stefánsson
Fabianski til Arsenal (Staðfest)

Fabianski á æfingu með pólska landsliðinu.
Auglýsing frá flugfélaginu Emirates í bakgrunni en það er einmitt nafnið á nýja heimavellinum hans.

Mynd: Getty Images

Pólski markvörðurinn, Lukasz Fabianski, hefur gengið til liðs við Arsenal frá Legia Varsjá. Þessi 22 ára landsliðsmarkvörður er búinn að skrifa undir langtímasamning við félagið en kaupverðið er óuppgefið.
Fabianski hefur leikið fjóra landsleiki og hann var valinn besti markvörður Póllands síðastliðin tvö ár.
,,Hann er mjög góður og ungur leikmaður sem mun styrkja hópinn okkar mikið. Hann hefur spilað af miklum stöðugleika fyrir Legia Varsjá undanfarin tímabil og hann fékk réttilega sæti í pólska landsliðshópnum sem lék á HM sl. sumar," sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal um Fabianski.
,,Lukasz mun koma með fullt af kostum inn í liðið og okkur hlakkar til að sjá hann á undirbúningstímabilinu."
Fabianski var einnig ánægður. ,,Ég geng mjög ánægður til liðs við Arsenal. Þetta er frábær klúbbur með fullt af heimsklassaleikmönnum og ég hlakka til að hitta nýju liðsfélagana mína."
,,Arsenal er einn stærsti og besti klúbbur í Evrópu og ég vonast til að geta hjálpað liðinu að vinna titla í framtíðinni."

Heimild: BBC