Fotbolti.net
26.05.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Arnar Þór Viðarsson til Cercle Brugge (Staðfest)

Arnar Þór Viðarsson til Cercle Brugge (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Þór Viðarsson hefur gert þriggja ára samning við Cercle Brugge frá Belgíu en hann kemur til félagsins frá FC Twente í Hollandi.
Arnar Þór, sem er þrítugur, var í láni hjá De Graafschap í Hollandi í vetur þar sem hann skoraði tvö mörk í 32 leikjum.

Þessi uppaldi FH-ingur þekkir vel til í belgíska boltanum enda lék hann með Lokeren frá 1998-2006 og var meðal annars fyrirliði liðsins um tíma.

Hjá Cercle Brugge á Arnar Þór að fylla skarð Besnik Hasi en þessi 36 ára gamli miðjumaður frá Albaníu er að leggja skóna á hilluna.

Cercle Brugge leikur í efstu deild en á síðustu leiktíð endaði liðið í fjórða sæti deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.