Fotbolti.net
26.06.06 - 18:13
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Hartson til WBA (Staðfest)

Hartson á leiðinni í enska boltann á ný

Hartson á leiðinni í enska boltann á ný

Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion gengu í dag frá kaupunum á sóknarmanninum og reynsluboltanum John Hartson frá Celtic.
Welski landsliðsmaðurinn, sem er 31 árs gamall, skrifaði undir tveggja ára samning hjá 1. deildar liðinu sem þurfa að borga hálfa milljón punda fyrir hann.

,,Ég átti fimm frábær ár í Skotlandi og hef verið svo heppinn að spila fyrir eitt stærsta félag í heiminum, en vegna fjölda ástæðna er kominn tími fyrir mig að breyta til og snúa aftur í enska boltann. Ég talaði við Bryan Robson og var spenntur yfir markmiðunum fyrir næsta tímabil,” sagði þessi fyrrum leikmaður Arsenal og West Ham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.