Fotbolti.net
26.06.07 - 16:57
Magnús Már Einarsson

Martin Cranie til Portsmouth (Staðfest)

Martin Cranie til Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Martin Cranie varnarmaður Southampton hefur gengið til liðs við Portsmouth og gert þriggja ára samning.
Cranie sem er tvítugur hafði hafnað nýjum samningstilboði frá Southampton en Portsmouth þarf að greiða uppeldisbætur fyrir leikmanninn.

,,Ég er mjög ánægður með að vera kominn aftur í úrvalsdeildina. Ég hef verði í Championship í nokkrar leiktíðir en núna kem ég aftur í úrvalsdeildina, það er nokkuð stórt skref fyrir feril minn," sagði Cranie við BBC Solent.

,,Harry Redknapp var stjórinn sem gaf mér tækifæri í úrvalsdeildinni þegar ég var hjá Southampton og hann hafði mikil áhrif á ákvörðun mína að koma hingað."

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.