Þriðja umferðin í Pepsi Max-deild karla er á dagskrá á sunnudag og mánudag.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir, framherji Breiðabliks, spáir í leikina að þessu sinni en hún skoraði þrennu í stórsigri á KR í vikunni.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir, framherji Breiðabliks, spáir í leikina að þessu sinni en hún skoraði þrennu í stórsigri á KR í vikunni.
Stjarnan 3 - 0 KA (17:00 á sunnudag)
Stjörnumenn unnu fyrstu tvo leikina í deildinni og ætla ekki að byrja á því að tapa núna. 3-0 fyrir Stjörnunni og Hilmar Árni kemur að öllum mörkunum.
ÍA 0 - 1 KR (19:15 á sunnudag)
Það verður hart barist í þessum leik. Leikmenn KR eru pirraðir eftir tapið í síðasta leik og ætla ekki að láta það gerast aftur. ÍA einnig pirraðir eftir tapið á móti FH, en KR vinnur þennan leik 1-0.
HK 2 - 2 Valur (19:15 á sunnudag)
Þetta verður hörkuleikur. HK með mikið sjálfstraust eftir 3-0 sigur á KR og vilja meira. Valsmenn áttu einnig góðan leik á móti Gróttu. Leikurinn endar þó í jafntefli, 2-2.
Fylkir 1 - 0 Grótta (19:15 á mánudag)
Bæði liðin að leitast eftir sínum fyrstu stigum. Fylkir vinnur þennan leik 1-0 og kemur markið á lokamínútunum.
Breiðablik 3 - 0 Fjölnir (19:15 á mánudag)
Breiðablik er í miklu stuði þessa dagana og vinna örugglega 3-0. Damir vill skora fleiri mörk og setur 1, ásamt Kidda Steindórs og Thomas Mikkelsen.
Víkingur R. 1 - 3 FH (19:15 á mánudag)
Víkingur þarf því miður að bíða lengur eftir fyrsta sigrinum. FH vinnur 3-1 og Steven Lennon verður í miklu stuði og skorar.
Fyrri spámenn:
Þorkell Máni Pétursson (3 réttir)
Ingólfur Sigurðsson (2 réttir)
Ekki gleyma Draumaliðsdeild Eyjabita!
Mundu að gera breytingar á þínu liði í Draumaliðsdeild Eyjabita. Hægt er að skrá sig í allt sumar. Markaðurinn lokar klukkutíma fyrir fyrsta leik umferðarinnar.
Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir