Fotbolti.net
26.06.20 - 22:57
Ívan Guðjón Baldursson

Bryndís Rut: Amber er mjög hörð - Myndi passa mig

Auglýsing
Bryndís Rut: Amber er mjög hörð - Myndi passa mig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Bryndís Rut Haraldsdóttir, fyrirliði Tindastóls, var sátt eftir jafntefli í hörkuleik gegn Keflavík í Lengjudeildinni í kvöld.
Keflavík komst yfir í fyrri hálfleik en Sauðkræklingar jöfnuðu í síðari hálfleik. Liðunum hefur verið spáð góðu gengi í Lengjudeildinni í sumar.

„Ég átti von á hörkuleik, baráttu og háu tempói. Þetta hefði getað dottið báðu megin í raun og veru þannig við erum sátt með okkar stig í dag," sagði Bryndís Rut.

„Við vissum hvað þær ætluðu að gera, markið sem við fáum á okkur er einbeitingarleysi. Það voru ákveðin svæði sem við vildum fara á og það var að virka en við náðum ekki að klára okkar færi."

Gestirnir frá Keflavík vildu fá vítaspyrnu í uppbótartíma þegar Amber Kristin Michel, markvörður heimakvenna, handsamaði boltann eftir samstuð við Natasha Moraa Anasi, fyrirliða Keflavíkur.

„Þær áttu ekki að fá víti. Hún er mjög hörð, markmaðurinn okkar, þannig ég myndi passa mig á henni."

Bryndís var að lokum spurð út í markmið Tindastóls í sumar. „Okkar markmið í sumar er að fara upp."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.