„Sádarnir vilja alla bestu leikmennina mína"


Mynd: Getty Images


Mynd: Lyon


Mynd: Getty Images
Bandaríski viðskiptajöfurinn John Textor er hluteigandi í ýmsum fótboltafélögum víða um heim og hefur tjáð sig vegna áhuga frá Sádí-Arabíu á leikmönnum liða hans.
Hann er ósáttur með tilraunir Sádanna, sem vilja meðal annars stela Luis Castro þjálfara Botafogo í Brasilíu, en Textor á meirihluta í félaginu.
„Hann er með tilboð frá Sádí-Arabíu. Þeir eru að reyna að stjórna fótboltaheiminum með peningum. Það er mjög freistandi að samþykkja þessi tilboð," sagði Textor í viðtali við Canal TF.
„Hann (Luis Castro) elskar þetta félag, ég veit að hann vill vera áfram hjá okkur. Hann hefur sagt mér hversu mikið hann elskar Botafogo.
„Sádarnir eru að reyna að kaupa allt. Þeir vilja besta leikmanninn minn hjá Lyon, besta leikmanninn minn hjá Crystal Palace og líka bestu leikmennina og þjálfarann hjá Botafogo. Þeirra strategía er að kaupa allan fótboltaheiminn. Við verðum að bíða og sjá hvaða afleiðingar þetta hefur."
Wilfried Zaha, sem verður samningslaus á næstu dögum eftir 458 leiki hjá Palace, gæti verið á leið til Sádí-Arabíu alveg eins og Alexandre Lacazette, sem á þó tvö ár eftir af samningi hjá Lyon.


Mynd: Lyon


