
Liverpool blandar sér í baráttuna um eftirsóttan og umtalaðan sóknarmann, leikmaður Dortmund nálgast Chelsea og Manchester United hyggst selja leikmann á afsláttarverði. Þetta og fleira í slúðurpakkanum.
Liverpool hefur blandað sér í baráttu við Manchester United og Arsenal um sænska framherjann Viktor Gyökeres (27) hjá Sporting Lissabon. (Correio da Manha)
Chelsea er að nálgast kaup á Jamie Gittens (20), enskum vængmanni Borussia Dortmund. Þýska félagið vill fá 50 milljónir punda fyrir hann. (ESPN)
Manchester United gæti samþykkt tilboð upp á um 45 milljónir punda til að selja argentínska vængmanninn Alejandro Garnacho (20) á fljótlegan hátt. (Star)
Newcastle er að skoða leikmenn eins og Johan Bakayoko (22), vængmann PSV Eindhoven, og belgíska framherjann Karim Adeyemi (23) hjá Dortmund ef félaginu mistekst að fá Anthony Elanga (23), vængmann Nottingham Forest og sænska landsliðsins. (Teamtalk)
Manchester United á í erfiðleikum með að selja hollenska vinstri bakvörðinn Tyrell Malacia (25) sem hjálpaði PSV Eindhoven að vinna hollensku deildina þegar hann var á láni síðasta tímabil. (Athletic)
Sunderland hefur átt í viðræðum við Nice um möguleg kaup á pólska markverðinum Marcin Bulka (25). (Fabrizio Romano)
Everton hefur hafið viðræður við spænska félagið Villarreal um möguleg kaup á franska framherjanum Thierno Barry (22) og hefur ekki útilokað að greiða 34 milljóna punda riftunarákvæði hans. (ESPN)
Manchester City hefur hafnað 6,5 milljóna punda tilboði frá Hoffenheim í varnarmanninn Callum Doyle (21), enskan U21 landsliðsmann. (Mail)
Everton vonast enn til að fá Kenny Tete (29) frítt þrátt fyrir fréttir af því að Fulham hafi boðið hollenska hægri bakverðinum nýjan samning. (Independent)
Benfica hefur enn ekki fengið tilboð frá Real Madrid í spænska vinstri bakvörðinn Alvaro Carreras (22) sem gekk til liðs við portúgalska félagið í fyrra frá Manchester United. (Marca)
Everton og Manchester United hafa bæði áhuga á nígeríska miðjumanninum Wilfred Ndidi (28) hjá Leicester en hann er með 9 milljóna punda riftunarákvæði eftir fall liðsins. (Talksport)
Everton og fleiri úrvalsdeildarfélög sýna Mihailo Ivanovic (20), serbneskum framherja Millwall, áhuga en hann skoraði 14 mörk í öllum keppnum á síðasta tímabili. (London World)
Birmingham, Hull, Preston, Swansea og Southampton hafa öll áhuga á Lewis O'Brien (26), miðjumanni Nottingham Forest. (Alan Nixon)
Eftir að Kyle Walker-Peters (28) fór hefur Southampton aukið áhuga sinn á skoska hægri bakverðinum Max Johnston (21) sem spilar nú fyrir Sturm Graz. (Pete O'Rourke)
Athugasemdir