Fotbolti.net
26.07.06 - 11:01
Guðmundur Dagur Ólafsson

Julio Arca til Middlesbrough (Staðfest)

Julio Arca til Middlesbrough (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough hafa gengið frá kaupunum á argentínska leikmanninum Julio Arca frá Sunderland. Arca, sem var gríðarlega vinsæll hjá stuðningsmönnum Sunderland, hafði verið í 6 ár hjá félaginu.
Hann ákvað að yfirgefa félagið eftir að þeir féllu úr úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og ákvað að fara til Boro en hann hafði líka verið orðaður við spænska félagið Espanyol.

Arca var með klásúlu í samningi sínum sem gerði honum kleyft að ræða við hvaða úrvalsdeildarfélag sem er og því gat Sunderland ekkert aðhafst þegar Boro vildi fá hann og þeir náðu að lokum að sannfæra hann um að skipta yfir til Middlesbrough.

Seinna í dag mun Arca, sem er önnur kaup Gareth Southgate síðan hann tók við liðinu í sumar, vera formlega kynntur á blaðamannafundi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.