26.07.07 - 11:44
Magnús Már Einarsson
Martin Petrov til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur keypt kantmanninn Martin Petrov frá Atletico Madrid á 4,7 milljónir punda og hefur hann gert þriggja ára samning við enska félagið eftir að hafa staðist læknisskoðun.
Þessi 28 ára gamli Búlgari hafði verið sterklega orðaður við Tottenham en Sven-Goran Eriksson náði að krækja í kappann.
,,Að hafa Sven sem stjóra vóg þungt í ákvörðun leikmannsins," sagði Alistair Mackintosh framkvæmdastjóri Manchester City.
,,Það var alls ekki óvænt miðað við hæfileika leikmannsins að nokkur félög voru á eftir honum og ég er mjög ánægður með að hann hafi komið til Manchester City," bætti Mackintosh við.

Heimild: BBC