Fotbolti.net
26.07.07 - 11:52
Magnús Már Einarsson

Henry til Fram (Staðfest) - Fá danskan miðjumann á reynslu

Henry Nwosu.

Henry Nwosu.

Canon

Mynd: Getty Images

Framarar hafa samið við framherjann Henry Nwosu sem var til reynslu hjá félaginu á dögunum. Henry sem er 27 ára á ættir sínar að rekja til Nígeríu en er með þýskt vegabréf.
Henry hefur meðal annars leikið með Eintrach Frankfurt, Mannheim og St. Pauli í Þýskalandi, Sandefjord í Noregi og Hapoel Tel Aviv í Ísrael en hann lék fjóra leiki með Frankfurt í þýsku Bundesligunni tímabilið 1998/1999.

Þá munu Framarar fá danskan miðjumann að nafni Henrik Eggerts á reynslu á næstu dögum en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Henrik sem er 31 árs lék síðast með Nordsjælland í heimalandi sínu en hann hefur einnig leikið með Køge og þá fór hann fyrir nokkrum árum til skoska liðsins Hearts á reynslu.

Heimild: Heimasíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.