Fotbolti.net
26.07.07 - 14:03
Arnar Geir Halldórsson

Luke Young til Middlesbrough (Staðfest)

Luke Young tæklar Craig Bellamy á sínum tíma

Luke Young tæklar Craig Bellamy á sínum tíma

Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough hafa gengið frá kaupum á Luke Young, hægri bakverði sem kemur frá Charlton Athletic.
Young hefur verið eftirsóttur eftir að Charlton féll úr úrvalsdeildinni og hafa viðræður um samninginn staðið frá því í seinustu viku en Boro þurfa að punga út 2,5 milljónum punda fyrir kappann.

Young er 28 ára Englendingur og stóðst hann læknisskoðun á Riverside í gær og var formlega kynntur fyrr í dag.

Leikmaðurinn kom til Charlton frá Tottenham fyrir sex árum á 3 milljónir punda og hefur spilað yfir 200 leiki fyrir félagið. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning síðasta sumar en var leyft að fara þar sem hann vildi ekki spila í næstefstu deild.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.