Brjálaður út í markvörð Man Utd - „Líklega best að hann forðist okkur"

Paul Mullin.

Mynd: Getty Images

Paul Mullin.

Mynd: Getty Images
Phil Parkinson, stjóri Wrexham, var vægast sagt ósáttur þrátt fyrir 3-1 sigur gegn ungu liði Manchester United í æfingaleik í gær.
Sjá einnig:
Ungt lið Man Utd tapaði fyrir Wrexham í grófum æfingaleik

Paul Mullin, markahrókur Wrexham, varð fyrir slæmum meiðslum í leiknum eftir árekstur við markvörðinn Nathan Bishop. Hann þurfti að fara á spítala út af meiðslunum en hann er með samfallið lunga.
„Þetta er mikið högg fyrir okkur. Mér fannst þetta klaufalegt hjá markverðinum og þetta átti að vera beint rautt spjald," sagði Parkinson eftir leik.
„Ég er brjálaður, ég verð að vera hreinskilinn með það. Ég hef ekki séð markvörðinn eftir leik og það er líklega best að hann forðist okkur vegna þess að við erum ekki ánægðir, alls ekki."
Bishop sendi Mullin afsökunarbeiðni í gegnum samfélagsmiðilinn Twitter.
„Þetta var slys og það var alls engin illska í þessu. Ég biðst innilegrar afsökunar, Paul Mullin. Ég óska þér góðs bata og ég vona að þú farir aftur að skora mörk eins fljótt og mögulegt er," skrifaði Bishop.
Það var mikil harka í leiknum en Dan Gore, ungur leikmaður Man Utd, fékk beint rautt spjald í byrjun seinni hálfleiks.
Hægt er að sjá myndband af atvikinu hér fyrir neðan.

Just catching up on this. Wrexham’s Paul Mullin suffered a punctured lung after an early clash with Manchester United goalkeeper Nathan Bishop in their friendly yesterday.
— HLTCO (@HLTCO) July 26, 2023
Fair to say Phil Parkinson wasn’t happy. pic.twitter.com/jVKBEvoDHI