26.07.23 - 15:35
Elvar Geir Magnússon
Tottenham lyfti Tiger bikarnum - Richarlison með þrennu

Richarlison með Tiger bikarinn.

Mynd: Getty Images

Richarlison með Tiger bikarinn.

Mynd: Getty Images
Richarlison skoraði þrennu í seinni hálfleik þegar Tottenham vann 5-1 sigur gegn singapúrska liðinu Lion City Sailors í æfingaleik í Singapúr í dag.
Barist var um hinn svokallaða Tiger bikar sem gefinn var af singapúrska bjórframleiðandanum.
Barist var um hinn svokallaða Tiger bikar sem gefinn var af singapúrska bjórframleiðandanum.
Tottenham lenti undir á 14. mínútu en svaraði með mörkum frá Harry Kane, Giovani Lo Celso og Brassanum.
Þetta var fyrsti sigurleikur Tottenham síðan Ange Postecoglou tók við liðinu. Tottenham tapaði fyrsta æfingaleiknum undir hans stjórn, gegn West Ham.
Liðið átti að mæta Leicester síðasta sunnudag en þeim leik var aflýst vegna veðurs í Tælandi.

Let's hear from Emerson and Richy! ????? pic.twitter.com/arVg9GGSJG
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) July 26, 2023