26.07.26 - 13:54
Brynjar Ingi Erluson
Frábær frumraun Casemiro

Mynd: Inter Miami

Mynd: Inter Miami
Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro var einn af bestu mönnum vallarins er hann þreytti frumraun sína með Inter Miami í MLS-deildinni í nótt.

TENGT EFNI
Casemiro til Inter Miami (Staðfest) - Félagaskiptin til rannsóknar
Hinn 34 ára gamli Casemiro gekk til liðs við Inter Miami á frjálsri sölu frá Manchester United um síðustu mánaðamót.
Hann fór beint í byrjunarliðið gegn Montreal og lét strax að sér kveða.
Brasilíumaðurinn var öflugur á miðsvæðinu og vann boltann oftar en nokkur annar. Þá var hann með næstflestar heppnaðar sendingar og sendingar inn á síðasta þriðjung vallarins auk þess að vera í þriðja sæti í endurheimtum og snertingum.
Inter Miami var án Lionel Messi, sem er enn í fríi eftir heimsmeistaramótið, en vann leikinn með vítaspyrnumarki Luis Suarez á 81. mínútu.

Casemiro’s Inter Miami debut vs Montreal last night
— Kobi (@UTDKobi) July 26, 2026
Look how comfortable he already looks?????? pic.twitter.com/PGuWepMrWA