Fotbolti.net
26.07.26 - 13:45
Brynjar Ingi Erluson

Dzeko tekur slaginn áfram með Schalke

Edin Dzeko verður áfram hjá Schalke

Edin Dzeko verður áfram hjá Schalke

Canon

Mynd: EPA

Bosníski reynsluboltinn Edin Dzeko mun spila áfram með Schalke og leiða liðið í endurkomu þess í efstu deild Þýskalands á komandi leiktíð.
Þessi fertugi framherji sneri aftur til Þýskalands í byrjun árs þegar hann gekk til liðs við Schalke.

Hann hjálpaði félaginu að vinna þýsku B-deildina og tryggja sér sæti á ný í efstu deild og varð meðal annars elsti markaskorari í sögu B-deildarinnar.

Að tímabilinu loknu sagðist hann óviss um framtíðina og ætla að einbeita sér að heimsmeistaramótinu með Bosníu áður en hann tæki ákvörðun um næsta skref.

Schalke hefur nú tekist að sannfæra hann um að vera áfram í að minnsta kosti eitt ár til viðbótar. Hann hefur samþykkt nýjan samning sem verður staðfestur á næstu dögum.

Samkvæmt Fabrizio Romano hafnaði Dzeko tilboðum frá félögum í Bandaríkjunum, Ítalíu og Þýskalandi til að halda kyrru fyrir hjá Schalke.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.