Fotbolti.net
26.07.26 - 14:27
Brynjar Ingi Erluson

Þung byrjun hjá Hirti

Hjörtur þreytti frumraun sína með Gautaborg í dag

Hjörtur þreytti frumraun sína með Gautaborg í dag

Canon

Mynd: IFK Göteborg

Íslendingalið Gautaborgar tapaði fyrir toppliði Sirius, 4-1, í sænsku úrvalsdeildinni í dag en Hjörtur Hermannsson var að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið.
Hjörtur gekk til liðs við Gautaborg frá gríska félaginu Volos á dögunum. Hann var á bekknum í síðasta leik, en kom ekki við sögu og kom síðan inn í byrjunarliðið fyrir erfiða leikinn gegn Sirius í dag.

Hjörtur átti ekki sinn besta dag í vörninni og kom við sögu í fyrstu tveimur mörkum Sirius. Honum mistókst að hreinsa frá eftir hornspyrnu í aðdraganda þess fyrra og náði ekki að koma í veg fyrir það síðara eftir fyrirgjöf frá vinstri.

Hann var tekinn af velli snemma í síðari hálfleik. Ekki er þó útilokað að skiptingin hafi verið fyrir fram ákveðin til að stýra álaginu á Hirti, sem hefur aðeins verið í tvær vikur hjá félaginu.

Kolbeinn Þórðarson fór af velli um svipað leyti þegar staðan var 2-1. Sirius bætti við tveimur mörkum áður en yfir lauk og vann 4-1.

Sirius situr áfram á toppnum með 38 stig en Gautaborg er í 13. sæti með 13 stig.

Elías Rafn Ólafsson stóð í marki Midtjylland sem vann 3-2 sigur á SonderjyskE, liði Daníels Leós Grétarssonar, í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar.

Daníel fékk 7,4 í einkunn fyrir frammistöðu sína í vörninni en Elías 6,2 fyrir sinn leik í marki Midtjylland. Einkunnirnar eru frá Flashscore.

Ólafur Hjaltason kom inn af bekknum hjá Aarhus Fremad sem marði 2-1 sigur á Hobro í dönsku B-deildinni.

Kolbeinn Birgir Finnsson var í byrjunarliði Valerenga sem vann Brann, 3-2, í norsku úrvalsdeildinni. Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon komu báðir inn af bekknum hjá Brann í síðari hálfleik en Kristall Máni Ingason var ónotaður varamaður.

Valerenga fór með sigrinum upp fyrir Brann og í sjötta sæti með 20 stig. Brann er sæti neðar með 19 stig.
Elías Rafn hafði betur gegn Daníel Leó

Elías Rafn hafði betur gegn Daníel Leó

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.