Fotbolti.net
26.08.05 - 14:51
Hörður Snævar Jónsson

Ferrari til Everton á láni (Staðfest)

Matteo Ferrari kominn til Everton

Matteo Ferrari kominn til Everton

Canon
Matteo Ferrari hefur gengið til liðs við Everton á árs lánsamningi frá Roma en enska liðið getur keypt kappann á 3,7 milljónir punda á næsta ári. Matteo sem er 25 ára varnarmaður kom til Roma síðastliðið sumar frá Parma. Fái hann leikheimild í tíma spilar hann væntanlega sinn fyrsta leik gegn Fulham á morgun.
Ferrari var ánægður að vera kominn til Englands og hafði þetta að segja: ,,Ég er mjög ánægður að vera kominn hingað, Everton sýndu svo mikla trú mér og þess vegna er ég ánægður að vera hér."

David Moyes hafði þetta að segja um komu Ferrari: Hann spilaði um 50 leiki á síðasta tímabili fyrir Roma og var í ítalska landsliðinu sem fór á Evrópumótið. Við erum að tala um mann með hæfileika en mikilvægast er að hann aðlagist ensku úrvalsdeildinni"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.