26.08.05 - 16:28
Albert Luque til Newcastle (Staðfest)

Spænski framherjinn Albert Luque hefur skrifað undir fimm ára samning við Newcastle United. Hann stóðst læknisskoðun í morgun og gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir liðið á sunnudaginn gegn Manchester United ef leikheimild hans berst í tæka tíð.
"Ég er mjög ánægður" sagði Luque við heimasíðu félagsins. "Ég hlakka til að spila með Alan Shearer. Ég er spenntur, þetta er frábær staður til að spila á. Ég get ekki beðið eftir því að spila fyrir framan stuðningsmenn Newcastle í fyrsta skipti."
Kaupverðið á Luque eru 9,5 milljónir punda en hann getur einni spilað á vinstri kantinum. Newcastle hafa enn ekki skorað í þeim þremur leikjum sem búnir eru í Úrvalsdeildinni en Graeme Souness hefur trú á því að það muni breytast, sérstaklega með tilkomu Luque.
Þrátt fyrir að hafa keypt Luque ætla Newcastle enn að reyna að fá Michael Owen til sín en það mál veltur allt á Liverpool sem eru í kjörstöðu til að kaupa hann sem þeir munu reyna að gera í næstu viku. Ef það gengur ekki gæti Owen farið að láni til Newcastle.
Þrátt fyrir að hafa samþykkt að ganga til liðs við félagið að láni vill Owen ekki verða keyptur þangað. Newcastle myndu væntanlega sætta sig við það fari Owen ekki til síns gamla liðs, Liverpool.