Fotbolti.net
26.08.05 - 22:58
Hafliði Breiðfjörð

Tiago til Lyon (Staðfest)

Tiago til Lyon (Staðfest)
Canon
Frönsku meistararnir í Olympique Lyon gengu í kvöld frá kaupunum á Tiago miðvallarleikmanni Chelsea enn fyrr um daginn virtist sem ekkert yrði af kaupunum því Lyon sökuðu Chelsea um að hækka verðið.
Tiago kemur beint á miðjuna í lið Lyon til að leysa stöðu Michael Essien sem var seldur til Chelsea fyrir viku síðan.

,,Lyon og leikmaðurinn (Tiago) hafa komist að samkomulagi og samningurinn hefur verið frágenginn milli beggja aðila," sagði talsmaður franska félagsins við Reuters í gærkvöld en hann neitaði að tjá sig um kaupverð.

Franskir miðlar sögðu að Lyon hafi verið tilbúnir að greiða 10 milljónir evra fyrir Essien. Tiago gekk í raðir Chelsea frá Benfica í júí 2004. Hann spilaði 34 leiki fyrir Chelsea á síðustu leiktíð og skoraði í þeim fjögur mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.