Fotbolti.net
26.08.06 - 05:55
Hafliði Breiðfjörð

De La Cruz til Reading (Staðfest)

De La Cruz í leik með Ekvador.

De La Cruz í leik með Ekvador.

Canon

Mynd: Getty Images

Reading gengu í gærkvöld frá samningum við Ulises De La Cruz landsiðsmanni Ekvador. Cruz sem er 32 ára gamall hætti hjá Aston Villa í lok síðustu leiktíðar. Hann gerði eins árs samning við Reading.
Hann hefur æft með Reading undanfarna viku en er ekki í nægilega góðu formi til að spila með liðinu gegn Wigan í dag.

,,Ég var mjög hissa á því að Ulises væri enn á lausu. Hann er leikmaður sem getur spilað á þessu stigi," sagði Steve Coppell stjóri Reading."

De La Cruz lék 99 leiki fyrir Aston Villa á fjögurra ára tímabili. Hann sagði eftir undirskriftina.

,,Ég hef ekki leikið undanfarna tvö mánuði svo ég þarf að aðlagast liðinu fljótt. En ég hef verið að æfa með leikmönnunum undanfarna daga og naut þess mikið. Ég mun leggja hart að mér fyrir sæti í liðinu. Ég vil halda áfram að spila fyrir land mitt svo ég þarf að komast í Reading liðið."

Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson leika með Reading auk þess sem hinn ungi Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið að gera það gott með U-19 og varliði félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.