26.08.26 - 16:23
Elvar Geir Magnússon
Merson reiður: Ógeðslegt ef hann neitaði að spila

Unai Emery, stjóri Aston Villa.

Mynd: EPA

Ollie Watkins.

Mynd: EPA

Paul Merson er sérfræðingur Sky Sports.

Mynd: Sky Sports

Unai Emery, stjóri Aston Villa.

Mynd: EPA
Aston Villa átti martraðarbyrjun á tímabilinu þegar liðið tapaði 4-0 gegn Brighton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Aston Villa seldi lykilmennina Ezri Konsa, Youri Tielemans og Morgan Rogers í sumar.
Ofan á þetta spilaði sóknarmaðurinn Ollie Watkins ekki gegn Brighton en það er áhugi á honum frá Sádi-Arabíu. Markvörðurinn Emi Martínez spilaði heldur ekki í leiknum.
Sparkspekingurinn Paul Merson, fyrrum leikmaður Aston Villa, er ekki brattur með gang mála.
„Það brýtur hjarta manns að sjá Villa í þessari stöðu. Ég sé ekki að stjórinn Unai Emery verði þarna mikið lengur. Þetta er brjálæði á hæsta stigi. Við erum að tala um risastórt fótboltafélag sem komst nýlega í Meistaradeildina, vann Evrópubikar - og seldi svo alla sína bestu leikmenn," segir Merson.
„Ég sé þá ekki enda í efri hlutanum, jafnvel þó þeir séu með stjóra í fremstu röð í Unai Emery. Hann hlýtur að vera pirraður yfir stöðunni. Það bendir ekkert til þess að hann sé á förum. En ég sé ekki fyrir mér að Emery verði lengi ef þetta heldur svona áfram."

TENGT EFNI
Watkins mætti á æfingu og baðst afsökunar
Og þú getur ekki spilað fótboltaleik?
Watkins var ekki í leikmannahópi Aston Villa í tapinu gegn Brighton og sögusagnir um að hann hafi ekki viljað spila leikinn þar sem hann vilji fara til Al-Hilal.
„Ef það er satt að Ollie Watkins hafi verið leikfær í leiknum gegn Brighton en ekki gefið kost á sér, þá er það ógeðslegt á hæsta stigi. Þú ert að fá mikið borgað. Fólk situr í Holte End og borgar mikið fyrir ársmiða og fyrir að ferðast um landið til að horfa á liðið spila - og þú getur ekki spilað fótboltaleik?" segir Merson.
„Þú ert í besta starfi í öllum heiminum. Þú ert að spila í ensku úrvalsdeildinni, þú ert að spila sem framherji, þú ert að þéna gríðarlega, þú færð borgað fyrir að halda þér í formi."