Fotbolti.net
26.08.26 - 19:06
Brynjar Ingi Erluson

Villa samþykkir tilboð í Watkins

Ollie Watkins er á förum frá Villa

Ollie Watkins er á förum frá Villa

Canon

Mynd: EPA

Aston Villa hefur samþykkt að selja enska framherjann Ollie Watkins til sádi-arabíska félagsins Al Hilal.
Merson reiður: Ógeðslegt ef hann neitaði að spila
TENGT EFNI

Merson reiður: Ógeðslegt ef hann neitaði að spila

Aston Villa samþykkti í dag 52 milljóna punda tilboð Al Hilal í Watkins. Þetta kemur í kjölfar fregna af því að senegalski framherjinn Nicolas Jackson sé á leið til Villa frá Chelsea.

Watkins er þrítugur og hefur raðað inn mörkum fyrir Villa undanfarin ár auk þess að vera fastamaður í enska landsliðshópnum. Hann hefur fengið leyfi til að ferðast til Sádi-Arabíu í vikunni og ganga frá félagaskiptunum. Það er Fabrizio Romano sem greinir frá þessu á X.

Það verður sjónarsviptir að Watkins úr ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði 91 deildarmark fyrir Villa og er markahæsti leikmaður félagsins frá því úrvalsdeildin var sett á laggirnar árið 1992.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.