26.09.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Rooney hótar lögsókn gegn Andy Carroll

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ensku miðlarnir Mirror og Sun eru meðal þeirra sem fjalla um mál Andy Carroll og Wayne Rooney vegna nýrrar bókar sem sá fyrrnefndi er að gefa út.

TENGT EFNI
Mikil breyting á Rooney sem blæs á kjaftasögur
Í bókinni talar Carroll meðal annars um landsliðsferðir sínar með Englandi og drykkjustundirnar sem hann eyddi með Rooney í ferðunum.
Þetta er Rooney ekki kátur með og fer lögmaður hans fram á að þessum kafla verði eytt úr bókinni. Rooney segir sögurnar vera uppspuna frá rótum.
Rooney og Carroll spiluðu nokkra landsleiki saman og voru báðir í landsliðshópnum sem fór á EM 2012 í Úkraínu og Póllandi.
Allar líkur eru á því að Carroll fjarlægi þennan kafla úr bókinni eftir að greint hefur verið frá því að Rooney sé að hóta fyrrum landsliðsfélaga sínum lögsókn vegna málsins.