Fotbolti.net
26.10.05 - 15:47
Magnús Már Einarsson

Lárus Orri tekur við þjálfun Þórs (Staðfest)

Lárus Orri í leik með Þór í sumar.

Lárus Orri í leik með Þór í sumar.

Canon

Mynd: Pedrómyndir - Þórir Tryggvason

Varnarjaxlinn Lárus Orri Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari fyrstu deildarliðs Þórs á Akureyri. Lárus sem mun einnig leika með liðinu hefur gert þriggja ára samning við liðið en þetta kemur fram á heimasíðu Þórsara nú í dag.
Þessi fyrrum leikmaður WBA tekur við stjórnartaumunum hjá Þór af Dragan Stojanovic sem þjálfaði liðið síðari hluta sumars. Dragan mun nú fara aftur til fyrra starfa hjá Þór þar sem hann mun þjálfa 2.flokk og vera yfirþjálfari yngri flokka.

Spennandi verður að sjá hvernig Lárusi vegnar í þjálfuninni en Þórsarar ætla væntanlega að gera betur en síðasta sumar þegar þeir enduðu í sjötta sæti í fyrstu deildinni.

Sjá einnig:
Hin Hliðin á Lárusi Orra (Janúar 2003)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.