Fotbolti.net
26.10.05 - 22:43
Elvar Geir Magnússon

Ingvi Hrafn Ingvason í KA (Staðfest)

Ingvi Hrafn Ingvason í KA (Staðfest)
Canon

Mynd: www.ka-sport.is

KA á Akureyri hefur fengið til sín fyrsta leikmanninn síðan Slobodan Milisic var ráðinn þjálfari félagsins. Það er miðjumaðurinn Ingvi Hrafn Ingvason sem kemur frá Leiftri/Dalvík. Ingvi er 21 árs og skrifaði undir þriggja ára samning við KA, þetta kemur fram á vefsíðu félagsins.
Leiftur/Dalvík féll úr 2.deild í sumar og mun leika í 3.deild á næsta ári. Ingvi lék sexán leiki með félaginu í sumar og skoraði þrjú mörk. Á vesíðu KA segir Milisic hafa mikla trú á þessum leikmanni og að tilkoma hans muni vafalítið styrkja hópinn.

KA hafnaði í þriðja sæti í 1.deildinni í sumar og var í baráttu um að komast upp í úrvalsdeildina en það tókst þó ekki.

Heimild: www.ka-sport.is
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.