Fotbolti.net
26.10.06 - 17:14
Hafliði Breiðfjörð

Björn Viðar og Gunnar Kristjánsson í Víking (Staðfest)

Gunnar Kristjánsson í Víkingsbúningnum.

Gunnar Kristjánsson í Víkingsbúningnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar tilkynntu á fréttamannafundi rétt í þessu að þeir hafi gengið frá samningum við þá Björn Viðar Ásbjörnsson og Gunnar Kristjánsson um að ganga til liðs við félagið. Björn Viðar kemur frá Fylki og Gunnar frá KR. Auk þessa var tilkynnt um að félagið hafi framlengt samningum sínum við Ingvar Kale, Höskuld Eiríksson, Arnar Jón Sigurgeirsson og Jökul Ingason Elísabetarson.
Björn Viðar Ásbjörnsson hefur allan sinn feril leikið með Fylki en hefur undanfarin þrjú ár verið við nám í Bandaríkjunum samhliða þátttöku sinni á Íslandsmótinu og því ekki getað tekið þátt í undirbúningstímabilinu með Fylki og hefur farið utan áður en mótinu lauk. Það mun breytast núna því hann flytur til Íslands á ný í apríl og heldur ekki utan aftur þar sem hann er að ljúka náminu.

Hann er 25 ára gamall og spilaði aðeins níu leiki í Landsbankadeildinni í sumar. Samningur hans við Fylki rennur út um áramótin og hann mátti því byrja að ræða við önnur félög 15. október síðastliðinn. Hann á að baki 56 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim tíu mörk.

Gunnar Kristjánsson er 19 ára gamall og kemur frá KR. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir KR gegn Örgryte í Iceland-Express mótinu árið 2003 þá aðeins 16 ára gamall. Fyrsti deildarleikur Gunnars var gegn FH árið 2004. Frá þeim tíma hefur hann leikið tæplega sjötíu leiki fyrir félagið í öllum mótum. Sumarið 2005 var Gunnar fastamaður í liði KR sem vinstri bakvörður þó hann hafi leikið sem kantmaður og framherji upp alla yngri flokka félagsins.

Gunnar hefur einnig leikið með U17 ára og U19 ára landsliðum Íslands og var í kjölfar frammistöðu sinnar árið 2005 valinn í U21 landsliðsúrtak. Liðið sumar náði Gunnar ekki að festa sig í sessi í byrjunarliði KR en var þó meira og minna viðloðandi liðið og lék 12 í Íslandsmótinu og þrjá í Bikarkeppni.

Samningur Gunnars við KR rennur út um áramótin. Hann lék 12 leiki með KR í Landsbankadeildinni í sumar. Hann á að baki 28 leiki í Landsbankadeildinni og fimm í VISA bikarnum þar sem hann hefur skorað eitt mark.

Bakvörðurinn og fyrirliðinn Höskuldur Eiríksson og miðjumennirnir Jökull I. Elísarbetarson og Arnar Jón Sigurgeirsson framlengja til 2 ára en markvörðurinn Ingvar Kale til 3gja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.