Fotbolti.net
26.10.07 - 13:33
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Kasper Schmeichel á láni til Cardiff (Staðfest)

Kasper Schmeichel í leik með City fyrr á þessu tímabili.

Kasper Schmeichel í leik með City fyrr á þessu tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Cardiff City hefur gengið frá lánssamningi á markmanninum Kasper Schmeichel frá Manchester City í einn mánuð.
Schmeichel hefur ekki spilað fyrir City í meira en mánuð og er nú orðinn þriðju í goggunarröðinni, á eftir Joe Hart og Andreas Isaksson.

Dave Jones, stjóri Cardiff, vildi styrkja vörnina hjá sér en hann hefur séð liðið fá á sig fimmtán mörk í síðustu átta leikjum í Championship deildinni.

Schmeichel hélt fjórum sinnum hreinu fyrir City í sex leikjum í byrjunar tímabilsins og skrifaði undir fjögurra ára samning í síðasta mánuði.

,,Þetta þýðir ekki að Kasper eigi ekki framtíð hér, hann þarf bara að fá nokkra leiki,” sagði Sven Goran Eriksson, stjóri City.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.