Fotbolti.net
26.10.26 - 11:11
Elvar Geir Magnússon

Formaður NSÍ: Yrði miður að halda ekki Sigga Ragga

Formaður NSÍ: Yrði miður að halda ekki Sigga Ragga
Canon

Mynd: EPA

Sigurður Ragnar Eyjólfsson og lærisveinar hans í NSÍ Runavík eru orðnir Færeyjameistarar í annað sinn í sögunni eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli við HB í næstsíðustu umferð deildarinnar í gær.

Siggi Raggi hefur náð frábærum árangri með NSÍ en auk þess að landa meistaratitlinum gekk NSÍ virkilega vel í Sambandsdeildinni.
Siggi Raggi: Ég sá fólk gráta úr gleði
TENGT EFNI

Siggi Raggi: Ég sá fólk gráta úr gleði

Karsten Joensen, formaður NSÍ, segir í samtali við Kringvarpið að það hafi ekki verið krafa á Sigga Ragga að ná í meistaratitilinn þetta tímabilið. Þegar liðið kom sér í góða stöðu í toppbaráttunni, tók stjórnin ákvörðun um að setja í gírinn.

„Við vildum vera samkeppnishæfir á toppnum, en um mitt tímabil komumst við að því að við gætum afrekað meira en það. Við ákváðum að leggja allt undir, og árangurinn sést hér í dag. Við erum í skýjunum,“ sagði formaðurinn.

Enn er óvíst hvort hann Siggi Raggi áfram með liðið á næsta ári.

„Við eigum í góðum samskiptum við Sigga og munum setjast niður saman nú þegar öllu er lokið. Það væri miður ef okkur tækist ekki að ná samkomulagi, það verður að viðurkennast,“ sagði Joensen.

Siggi Raggi hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá Fylki ef Heimir Guðjónsson lætur af störfum í Árbænum til að taka við ÍA. Í viðtali við Fótbolta.net í sumar viðurkenndi hann að hugurinn væri alltaf að leita heim.

„Að sama skapi er einmanalegt að vera hérna einn, í burtu frá börnunum sínum. Auðvitað væri ákjósanlegt að geta starfað hjá góðu liði í sínu heimalandi. Það er samt ekki alltaf raunveruleikinn sem fótboltaþjálfari, maður þarf að vera tilbúinn að vera í burtu í einhvern tíma. Þetta verkefni er mjög skemmtilegt fótboltalega séð, gefandi og þroskandi," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Heimild: KVF

Sigurður Ragnar ásamt Gunnari Einarssyni.

Sigurður Ragnar ásamt Gunnari Einarssyni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.